340 g Ísey skyr (bláber eða vanilla)
100 g íslenskt smjör
250 ml rjómi frá Gott í matinn
20 stk makkarónukökur
Bláber
Súkkulaðispænir
Aðferð:
- Takið fram 4 skálar og myljið 5 makkarónukökur í botninn á hverri skál.
- Bræðið smjör og hellið yfir makkarónukökurnar.
- Þeytið 250 ml af rjóma og blandið tveimur dósum af bláberja- eða vanilluskyri við rjómann með sleif.
- Næst er skyrblandan sett yfir makkarónukökurnar.
- Ofan á er hægt að setja hvað sem hugurinn girnist. T.d. fersk bláber, súkkulaðispænir eða muldar piparkökur.